Meira mál
Hjá Meira máli starfa talmeinafræðingar sem sérhæfa sig í tal- og málmeinum barna. Hér fyrir neðan má skrá barn á biðlista. Þegar þú sækir um fyrir barn samþykkir þú um leið skilmála stofunnar. Talmeinafræðingur mun hafa samband þegar kemur að þínu barni, en hafið í huga að einhver bið getur verið þar sem nú þegar eru komin mörg börn á biðlista.
Sara Bjargardóttir
Stofnandi og eigandi Meira máls
Talmeinafræðingur – starfar á samningi við SÍ
Menntun
M.S. í talmeinafræði frá Háskóla Íslands 2016.
B.A. í íslensku frá Háskóla Íslands 2012.
B.A. í dönsku frá Háskóla Íslands 2012.
Starf og reynsla
Sara starfaði sem talmeinafræðingur hjá Reykjavíkurborg 2016-2018.
Eftir það hefur hún starfað sem talmeinafræðingur hjá Garðabæ síðan 2018 og þar til hún opnaði Meira mál árið 2026.
Hefur verið með fræðslu fyrir fjölda foreldra og kennara leikskólabarna um máltöku barna og helstu frávik í tali og máli barna.
Fjölskylda
Sara er fædd í Kaupmannahöfn árið 1980 en ólst að mestu upp í Reykjavík, fyrir utan nokkur ár í Kaupmannahöfn. Sara er því tvítyngd á íslensku og dönsku. Sara kynntist manni sínum árið 2000 og á með honum tvö börn fædd 2004 og 2008.
Erna Þráinsdóttir
Talmeinafræðingur – starfar utan samning við SÍ
Menntun
M.S. í talmeinafræði frá Háskóla Íslands 2020.
B.Ed. leikskólakennari frá Kennaraháskóla Íslands 2008.
Starf og reynsla
Erna hefur starfað í leik- og grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu.
Hefur einnig starfað á leikskólasviði hjá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar.
Hefur undarfarin ár og starfar enn sem talmeinafræðingur á þjónustumiðstöð Reykjavíkurborgar og hjá Kópsvogsbæ.
Hefur verið með fræðslu fyrir foreldra og kennara leik- og grunnskólabarna um málþroska og læsi.
Fjölskylda
Erna er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún býr í Grafarholti með manni sínum, tveimur börnum og hundinum Spora.
Netfang
meiramal@meiramal.is
Heimilisfang
Grensásvegur 1A, 108 Reykjavík